My neim a Borat!

6.S Menntaskólanum í Reykjavík

13.08.2007 20:35:47 / Hildur Arna

Vantar þig vinnu?

12.08.07
Nangangailangan ng tagapaglinis at Katulong sa pagluto sa kantina, maaaring tatawag sa telepunong ito 575 1814 sa pagitan ng 9:00 ng umaga hanggang 16:00 ng hapon rnula Lunes hanggang Martes. 
Tók að mér að setja þessa auglýsingu hér fyrir Yang Nanng sem er vinur bróður míns.  
Ef e-m vantar vinnu í vetur endilega kommentið! 

» 14 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 12:51:58 / inga

útilega..

Voru ekki einhverjar raddir um MikkaMús-útilegu?

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 17:23:53 / arnar

Fauna

Ég tók Faunubækur þeirra sem sóttu þær ekki áðan.

Þið getið nálgast þær heima hjá mér í Blesugróf 16, Fossvogi.

Síminn er 6612483

 

kv. arnar


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 14:37:39 / Dagur

Blesspartý

Kæra pakk

 

Lesið tölvupóstinn ykkar.

 

Mikilvæg skilaboð þar um næstu helgi

 

Dagur 


» 16 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 15:00:44 / Dagur

Eldborg 2007

Á meðan þeir sem eru aftastir í stafrófunni eru enn í prófum sit ég og drekk minn øl.

 

Nú geri ég mig tilbúinn fyrir okkar hinsta tjut. Aldrei aftur MR. Menntaskólaárin búin. Finito.

 

Eins gott að þetta verði eins og Eldborgarhátíðin. Ég skaffa eldivið. Ójá, nú verður bókabrenna. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 21:30:50 / arnar

Hverjir eru á bíl?

Hverjir verða á bíl? Sama fyrirkomulag og í blogginu áðan.

Bílstjórar:

Þóra
Gyða
Frikki
Inga

R: 0328-26-023590  kt: 170587-2359. Borga borga...


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 14:55:57 / einar

Skráning

Þeir sem ætla með í bústaðinn segi já hér og ekkert annað.  Verð er 1500 kall á R: 0328-26-023590  kt: 170587-2359. !Ǩ昨Ϯ㊰Ϧʼn̊瑳汹eŷ̍⁐ώ⼺洯湳潤汬⹺潣⽭捩湯瀮灨椿杭㴲瑨灴⼺椯慭敧⹳獭摮汯穬挮浯术污敬祲䰯癯⽥獭摮汯穬彵㐱㠰〹㌴〰朮晩

» 22 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 22:27:53 / arnar

Sumarbústaður!

Jæja, eins og staðan er núna erum við með 15+ manna bústað á Hellu 29. maí....

...kallinn sem ég talaði við sagði að hann væri laus og við værum með hann. En ég er alveg hættur að treysta neinu í þessum bransa svo við erum ekkert endilega 100% með hann.

 Sagði að þetta væri paraferð, vonandi þau sjái ekki í gegnum það!

 Þið sem skiljið ekki hvað ég er að fara en þá vorum við komin með annan bústað fyrir nokkrum dögum en svo hringdi kellingin og sagði við fengjum hann ekki. (og þá líklega af því við erum krakkar nýbúnir í prófum).

En anywaaays, allir að gíra sig upp í bústaðadjamm 29. maí....vúhúú


» 50 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 16:58:24 / einar

DJAMMIÐ !!!!!

jæja þá er komið að mér með mitt blogg. En þetta er bara til strákanna,  ekki reyna að kracka kóðann!!

 

Jæja strákar stelpurnar geta eki séð þennan texta, þær eru ekki með skásetta stafi og keilur eins og við.

 Nú er það djammið!!! Eru menn ekki til í bústað á þriðjudaginn, það er lítið að gera í bænum á svona degi....  En þar sem við erum soldið fáir gæti þetta kostað soldið á mann :/, við gætum þurft einhverja til að borga, en hverja????

 

Jæja ok stelpur þið megið koma með! Er Hella ekki málið enn og aftur?

Og einhver saklaus stelpa verður að hringja, ég hef aldrei fengið játandi svar í símann!


» 86 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 21:21:24 / Hildur Arna

Dimission- Dagurinn sem gleymist seint :)

Það var um 7 sem Mikkarnir í 6.s mættu til Gunnars Sveins til að drekka, mála nefnið sitt, spjalla og borða muffins sem strákarnir voru svo góðir að kaupa :)  Strákarnir höfðu þá sumir hverjir gist heima hjá Gunna og sötrað kvöldið áður og rifu sig á lappir um 6 og hófu þá að sötra á ný og horfa á Shrek 2.  Mikkarnir mættu svo í tíma kl.8:10 í miklu stuði fyrir komandi dag og áttu vægast sagt eftir að gera góða hluti...

Eftir að hafa sungið með Kristínu gáfu Mikkarnir henni þakklætisvott fyrir kennsluna og verður að segjast eins og er að hamingjutárin leyndu ekki á sér þegar hún sá vinabókina, Fiðluballsmyndina og Kampavínið :)  Að því loknu tóku Mikkarnir einn góðan gimpahring áður en haldið var á sal.

Dagskráin inn á sal hófst rétt um fimm mínútur fyrir 9.  Þar var sungið við undirspil Bjarna konrektors, Inspó Doddi flutti nokkur vel valin, fyndin og góð orð og kríndi arftaka sinn Björn Brynjúlf og rektor flutti ræðu.  Dagskránni lauk svo með söngnum "Valente studia" þar sem Mikkar, múmíur, fígúrur úr 1000 og 1 nótt, Vallar, Turtles, sjóarar, Jack Sparrow og alsbert fólk fylgti liði út að hafa gaman á grasfletinum fyrir framan Gamla skóla.

Það var svo á þessum grasbletti sem bekkurinn tók vel valda leiki eins og köttur og mús og hlaup í skarðið, tóku gimpahring, Hókí-Pókí var dansaður, menn sungu hástöfum, Mikkarnir stálu fána sjóræningjanna, björguðu músum í neyð og veiddu veiðimenn í net :)  Eftir að hafa tryllt lýðinn með ,,Oh Mickey your so fine", ,,I like to move it" og Spice Girls var svo komið að því að færa kennurunum gjafir.

Kennaragjafirnar féllu líkt og fólk sá vel í kramið hjá kennurunum og má vægast sagt segja að viðbrögðin hafi ekki leynt á sér, hlátrasköll, bros sem náðu upp að eyrum, klökkur, tár og söknuður yfir því að nú væru þau að kveðja enn einn árganginn sem þau hefðu leyft að njóta krafta sinna.  Að lokinni gjafaafhendingunni var farið í fleiri leiki til að halda hita á mannskapnum enda var veðrið að stríða hópnum þó það rættist úr því síðar. 

Nú var svo komið að því sem allir höfðu beðið eftir það var að fá að fara í gámabílanna frægu.  Ferðin var skemmtileg þó hún væri nú bara táknræn að þessu sinni þar sem rútur ferjuðu mannskapinn upp á Pizza Hut frá Listasafninu í Tryggvagötu.  Á Pizza Hut var borðuð pizza og brauðstangir með bestu lyst enda mannskapurinn orðinn svangur.

Þá ákvað hópurinn að taka labbið og röllti að Menntaskólanum við Sund þar sem var stoppað mjög stutt og haldið var að Skeifunni þar sem mannskapurinn tyllti sér um stund og hugleiddi næstu skref.  Ákveðið var að halda í Kringlunna, fylla á áfengisbyrgðir og halda svo í Keiluhöllina.  Kringluförin var þó ekki löng þar sem einum Mikkanum var hent út, reyndar á leiðinni út úr húsinu svo ég, Frikki og Elín ákváðum að njóta sólarinnar sem skein og löbbuðum upp í Keiluhöll.  Á leiðinni fengum við viðbrögð eins og: ,,Eruð þið Mikka-druslur?"  og litlir krakkar fóru að vinka okkur og heilsa.

Keilan var mjög skemmtileg þó að, þar sannaðist þar að eftir einn (ja, eða nokkra) er ekki hægt að vera góður í keilu, þó þar hafi nú verið undantekning hún Þóra Æðsta baun en það voru einnig Gústi og Emma Dögg sem keiluðu eins og mestu snillingar við diskó-keiluna. Þar var auðvitað haldið áfram að drekka og auk þess sem hópur Mikka söng afmælissöngin fyrir 11 ára stúlku þar sem móðir hennar skelli hló af uppátækinu!

Þá var að hittast á Austurvelli en til að komast þangað voru ýmsar leiðir en þó skiptist hópurinn í þá sem fóru keyrandi og þá sem fóru fótgangandi.  Ég tilheyrði þeim sem löbbuðu og verð ég að segja að það var eitt mesta ævintýr :)  Komið var við á Droplaugarstöðum þar sem Kata vann og gamla fólkið glatt, einhverjir fóru svo á klósettið hjá ömmu Frikka og að lokum var Laugarvegurinn arkaður þar sem hópurinn var myndaður bak og fyrir og tók létt spjall við útlendingana.

Á Austurvelli var spjallað við unga krakka, sýndir fótboltataktar og meira drukkið en fyrst og fremst var maður að hitta hópinn aftur eftir smá aðskilnað.  Við brugðum okkur nú flest á American Style, borðuðum góðann hammara, ræddum um sambönd, hlógum af Degi og sumir fóru í barnaherbergið við góðar undirtektir þeirra sem þar voru :)

Við urðum viðskila við flesta aftur á þessum tíma, einhverjir fóru á Cultura, einhverjir voru ekki í ástandi til annars en að fara heim og enn aðrir sátu enn á spjalli á American Style. Þá komist hópurinn að niðurstöðu um að nú skildi haldið í partý til Dodda Inspó. Þegar þangað var komið voru X og Y bekkurinn að spjalla og einhverjir að dansa, en fyrir mitt leyti var ég komin dáldið úr stuði þarna og fyrir flesta var að spurning um að koma sér aftur í gírinn eða fara heim(sem kom ekki til greina!).  Því var næsti bjór bara opnaður, þrátt fyrir að vera orðinn flatur eftir mikinn hristing yfir daginn með tilhlökkun til þess að maður fengi ferskan kranabjór á Hverfis.  

Við héldum svo á Hverfis rétt fyrir kl.10 ég, Bjarma, Una og Frikki og þó það hafi veirð fámennt í fyrstu leið ekki á löngu þar til staðurinn fór að fyllast, fólk fór að dansa, fara í kyssuleikinn og spjalla.  

Þegar ég fór heim rétt yfir 11 var ég raddlaus og sá rúmið mitt í hyllingum :) Ég get þó ekki sagt annað en að hafa verið að skemmta mér í 17 tíma í Mikkamús búning var eitt það skemmtilegasta sem ég hef á ævi minni gert og mun seint gleymast og vil ég því þakka ykkur bekkjarsystkinum mínum fyrir ÆÐIslegann dag sem ég hefði ekki getað valið betri hóp til að verja með!!! :haha: VIÐ ERUM BEST SJÖTTI ESSSS!!!!

Takk æðislega

Hildur Arna með harðsperrur og verki allstaðar en SO WORTH IT :D

p.s Farið endilega að setja inn myndir :D;)

 

 

    


» 78 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 16:44:52 / Hildur Arna

Meira dimisson-dót

Halló, Halló! :) 

Ég talaði áðan aftur við konuna sem ég hef verið í bandi við í keiluhöllinni því ég hafði beðið um diskókeilu en hún minntist aldrei á það aftur í e-mailunum sem hún sendi mér.  Hún sagði að það væri ekki hægt að lofa okkur henni en hún ætlaði að skoða aðstæður þegar við kæmum, þetta er náttúrulega ekki auglýstur diskó-keilu tími og þá verður að vera diskó-keila á öllu svæðinu :(....En við sjáum hvað setur :)

Nú þætti mér vænt um ef fólk gæti lagt

500 kr inn á

Bankaupplýsingar: 1113-26-014298

kennitala: 1012872899 (SETJIÐ NAFNIÐ YKKAR Í SKÝRINGU PÍPS)

Svo við getum komið, ég greiði og við keilað.

Þá sé ég líka hverjir ætla :) Very simple!

 Talaði einnig við Ölver:

-Mæta amk. klukkustund fyrir leik, skv. vefsíðu hefst beinútsending 18:45

-Sveittur borgari ÓJJJÁ!!!

-Til að geta keypt á barnum þarf skilríki

 Jæja lítið meira að segja en ÉG HLAKKA SVO TIL ;)

Kv.Hildur Arna

 


» 20 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 11:08:37 / Hildur Arna

Dimisson

Helló Píps :)

Var að fá staðfestingu frá keiluhöllinni að við ættum pantað í keilu á 

miðvikudaginn kl.15, 1 leik og það kostar 500 kr á manninn :)

Það var ekki laust nema á þessum tíma ef e-r er að spá í tímasetningunni. En þá geta þeir farið heim eftir keiluna sem vilja. 

Við fengum tilboð á barnum hjá þeim:

  • Hálfan liter af bjór í krana 500 kjeddl
  • Budweiser í gleri á 350 kjeddl

Hljómar þetta ekki bara vel? :haha:

Kv. Hildur Arna

p.s gangi ykkur vel að læra ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 20:12:13 / arnar

:D

Jæja, getiði hvað!!

Ég kem með Faunumyndirnar í skólann á morgun, FINALLY..:lol:

 Þessvegna vil ég hvetja þá sem ekki hafa borgað að klára það!

Kv. Arnar


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14